Jaðrarnir þyrla rykinu

Punktar

Þeir, sem segja nei við IceSave eru 15% þjóðarinnar samkvæmt könnun Gallup. En þeir láta mikið fyrir sér fara, eru hávaðasamir. Þar sameinast þrenns konar siðleysingjar og ábyrgðarleysingjar. Fremst fer þar hægri jaðarinn, forstokkaðir hrunverjar, sem bíða endurkomu Davíðs og nýrrar ofursveiflu. Næst kemur miðkanturinn, hálf Framsókn, sem fylkir sér um landsins mesta lýðskrumara, Sigmund Davíð Gunnlaugsson. Í þriðja lagi er svo hluti órólega vinstri jaðarsins, Hreyfingin og hluti Vinstri grænna. Þessi þriggja kanta minnihluti mun næstu vikur þyrla upp feiknarlegu moldviðri þjóðrembings.