Af bloggi og fésbók að dæma halda margir, að Já þýði aflátsbréf handa bófum útrásarinnar. Aðrir tyggja bara í sífellu, að þeir borgi ekki skuldir bófa. Ég hef enga trú á, að hægt sé að snúa einfeldningum. Bind hins vegar vonir við, að ódýr hugsun breiðist ekki út til þeirra, sem eiga eftir að ákveða sig. Sein ákvörðun er gott merki um, að fólk vilji hugsa málið. Brýnt er, að hugsandi fólk láti í sér heyra í bloggi og á fésbók gegn slagorða-liðinu. Þar er orrustan um sálir fólks. Áskoranir hagsmunasamtaka eru eins lítils virði og stjórnmálamanna. Við verðum sjálf að verja reisn og þjóðarhagsmuni.