Landsfeður okkar í ríkisstjórn og Seðlabanka eru of heimskir til að hægt sé að lána Íslandi peninga. Erlendis er samkomulag um, að sú sé staða Íslands núna. Raunar svipað og ég hef lengi sagt um þjóðina alla: Íslendingar eru óvenjulega heimskir og hafa núna verra af. Geir Haarde og Davíð Oddsson sameina vitleysuna. Davíð getur ekki útvegað gjaldeyri til hversdagslegustu nota. Geir hrekst úr einu víginu í annað. Er sífellt að leiðrétta meintan misskilning annarra. Enginn treystir þjóðinni lengur og enn síður forkólfum hennar. Engu í heiminum er minna treyst um þessar mundir en orðinu Ísland.