Ísbjörninn varð að drepa. Hann hefði getað drepið menn og hesta í þokunni. Hann var á röngum stað í tilverunni í Þverárfjalli. Hins vegar var margt skrítið við framgöngu hins opinbera. Af hverju var veginum ekki lokað til að forða almenningi frá hættu? Af hverju fullyrti umhverfisráðuneytið, að ekki væru deyfilyf í landinu? Þau voru í skottinu á bíl dýralæknisins á Blönduósi. Yfivöld voru illa undir málið búin og höfðu því ekkert val. En eftirsjá er að fallegu dýri, sem hafði ferðazt hingað á ísjaka langa leið. Til að mæta ótímabærum örlögum. Ég hélt með bangsa gegn ofureflinu.
