Auglýsingar Iceland Express minna á auglýsingar Landsbankans. Forstjórarnir eru með allt niðrum sig, níðast á viðskiptavinum. Segjast samt vera hinir beztu menn. Sem er ekki til siðs að segja. Bankinn margbirtir mynd af sínum Sankti Kláusi, en flugfélagið lætur þann dónaskap þó vera. Pálmi Haraldsson segist stefna að 25% seinkunum, telur það mikið afrek. Steinþór Pálsson segist vera að siðvæða staffið. Gefur kvótagreifa samt tuttugu milljarða í skjóli bankaleyndar. Af auglýsingum bankans mætti ætla, að hann sé deild úr Rauða krossinum. Kókaínlykt af ímyndunar-herferðum tveggja glæpafyrirtækja.