Ingibjörg Sólrún Gísladóttir bar slæðu á fundi með Hamid Karzai, forseta Afganistans. Hún lagaði sig að siðum þarlendra. Ekkert er við það að athuga. Ef Karzai vill, að konur beri slæðu, þegar þær koma til hans, er rétt að fara eftir því. Á sama hátt gat ráðherra í Bretlandi krafizt þess, að kona, sem kom á skrifstofu hans, bæri ekki slæðu. Í Bretlandi er ekki siður, að gestir beri slæðu. Múslimar í Bretlandi kolbrjáluðust samt út af því. Þeir brjálast út af svo mörgu. Sinn er siður í landi hverju. Við tökum ekki upp siði múslima. Og ekki reglur þeirra um teikningar af spámönnum.
