Athyglisvert var upphlaupið í Samfylkingunni á gamlársdag gegn ákvörðun Jóhönnu Sigurðardóttur um breytta ríkisstjórn. Í uppreisnarliðinu var fólk úr armi Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur og annarra hrunverja. Liðið vildi verja ráðherrastól Árna Páls Árnasonar. Hann er bankavinur og víkingavinur hinn mesti, en lítill vinur alþýðunnar. Á flokksstjórnarfundi gamlársdagsins kom svo í ljós, að Ingibjargarsveit hrunverja hafði minni stuðning en hún hélt. Árni Páll sneri þá við blaðinu á miðjum fundi og lýsti stuðningi við ákvörðun Jóhönnu. Það var sigur Jóhönnu og gaf Árna pólitískt framhaldslíf.