Indverskur sigur

Greinar

Fáir trúðu fyrirfram á afturhvarf Indverja til lýðræðislegra stjórnarhátta. Hið indverska lýðræði var orðið eins og tímaskekkja í vaxandi harðstjórn og einræði þriðja heimsins. Menn voru ekki heldur vissir um, að lýðræðið væri raunhæft, því að sami flokkurinn hafði verið við völd frá upphafi sjálfstæðis Indlands og stjórnarskipti því aldrei orðið á tímabilinu. Og gerræðislegt stjórnarfar Indiru Gandhi á síðustu valdaárum hennar sannfærði menn um, að leifar indversks lýðræðis mundu brátt hverfa.

Það var því mikill og óvæntur sigur fyrir lýðræðið, er Indira Gandhi aflétti neyðarástandslögum og efndi til heiðarlegra þingkosninga. Ekki var það minni sigur, er hún sagði af sér með lýðræðislegum hætti, þegar stjórnarandstaðan hafði unnið meirihluta á þingi. Með því að innleiða lýðræði á nýjan leik hefur hún unnið persónulegan sigur í ósigri sínum. Hún hefur gert hreint fyrir sínum dyrum og verður hér eftir ekki sökuð um afnám lýðræðis í landinu.

Indira Gandhi tapaði kosningunum vegna gerræðis síns á undanförnum árum. Hún hafði látið setja lög um neyðarástand og notað þau til að treysta völd sín. Hún hafði varpað stjórnarandstæðingum þúsundum saman í fangelsi. Hún hafði með margvíslegum hætti reynt að ofsækja þá fáu frjálsu og óháðu fjölmiðla, sem þorðu að dansa ekki eftir hennar pípu. Indland stefndi hraðbyri til einræðis og ógnarstjórnar, þegar Indira Gandhi snéri skyndilega við blaðinu.

Það stuðlaði að tapi hennar, að hún hafði látið son sinn, Sanjay, leika lausum hala í þjóðfélaginu. Þetta er dekurbarn, sem kann sér ekki hóf í sjálfstrausti. Meðal annars hafði hann teiknað bíl, sem indversk bílaverksmiðja neyddist til að framleiða af pólitískum ástæðum, en var gersamlega ónothæfur. Ennfremur gekk hann of hart fram í vönunum á óviðbúnu fólki. Undir verndarvæng móðurinnar gekk hann berserksgang í stjórnmálunum, svo að menn töldu, að nú ætti að innleiða arfgengt konungsveldi ofan á harðstjórn og einræði.

Ekki er við því að búast, að hagur Indverja batni verulega með nýrri stjórn. Það eru ósamstæðir hópar lýðræðissinna, sem nú hafa náð völdum. Og mikil bjartsýni væri að ætla þá geta náð einlægu samstarfi um framfarir Indlands. En alténd fær Kongressflokkurinn nú tíma og tækifæri til að sleikja sárin og byggja upp sterkt framboð í næstu kosningum. Og aldrei er að vita nema hinir nýju valdhafar geti rýrt eitthvað spillinguna, sem grafið hefur um sig á löngu valdaskeiði Kongress.

Indverjar geta borið höfuðið hátt við stjórnarskiptin, þrátt fyrir hina efnahagslegu eymd í landinu. Þeir hafa sýnt fram á, að pólitískt siðgæði þeirra er á mun hærra stigi en víðast hvar í þriðja heiminum. Þeir hafa sýnt fram á, að þeir geta skipt um valdhafa með lýðræðislegum og friðsamlegum hætti. Ekki er þessi útkoma minni sigur fyrir lýðræðisöflin í heiminum. Það munar um minna en 600 milljónir Indverja, sem skyndilega hafa flutzt úr herbúðum einræðis í herbúðir lýðræðis. Þetta er mikill sigur eftir áralanga framsókn einræðis og ógnarstjórnar í þriðja heiminum.

Jónas Kristjánsson

Dagblaðið