|
|
Punktar
Fyrri síða
|
02.09.2010
Síðustu dagar ráðherrans
Síðustu dagar Gylfa Magnússonar sem ráðherra eru skelfilegir. Landsbankinn afskrifaði 27 milljarða króna persónulega ábyrgð Björgólfs Thors á skuldum sínum. Jafnframt lofaði bankinn að lögsækja hann ekki. Frá þessu var gengið í samningi skilanefndar bankans og mesta fjárglæframanns Íslandssögunnar. Nú er kominn tími til að setja skilanefndir gömlu bankanna í gapastokkinn. Þær hafa hagað sér forkastanlega, en með þessu glæpaverki tekur steininn úr. Það var hlutverk Gylfa í ríkisstjórninni að hindra bankaspillinguna í að ganga aftur. Hann brást alveg. Ryðilagði um leið traust fólks á ríkisstjórninni.
|
|
02.09.2010
Stjarnfræðilega dýr mistök
Barack Obama sagði i gær Íraksstríðið vera búið. Lét kyrrt liggja, að ekkert náðist af markmiðum stríðsins. Engin gereyðingarvopn fundust. Að minnsta kosti hundrað þúsund manns voru drepin, tvær milljónir eru landflótta og tvær milljónir eru heimilislaus. Allir kristnir menn hafa flúið landið. Öryggi er mun lakara en á tíma Saddam Hussein. Lítið fer fyrir umbótum á vestræna vísu. Olíuvinnsla er minni en fyrir stríð og rafmagn er af skornum skammti. Ríkisstjórnin er valdalítil og stjórnarkreppa hefur staðið í hálft ár. Kostaði Bandaríkin stjarnfræðilega upphæð, 90000 milljarða króna.
|
|
01.09.2010
Grínistar og kvótagreifar
Um frystihúsin sagði Halldór Laxness: Spaugararnir reisa þau fyrir styrk frá ríkinu, síðan fá þeir styrk af ríkinu til að reka þau, þvínæst láta þeir ríkið borga allar skuldir en verða seinast gjaldþrota og láta ríkið bera gjaldþrotið. Ef svo slysalega vill til að einhverntíma kemur eyrir í kassann þá fara þessir grínistar út að skemta sér. Þá höfðu grínistar ekki enn fattað að veðsetja þjóðareignina. Nú hafa þeir fattað, eru meira gjaldþrota en nokkru sinni fyrr. Tími er kominn til, að ríkið hirði kvótann út úr gjaldþrotunum. Við þurfum enga fyrningarleið til að endurheimta auðlindina.
|
|
01.09.2010
Hef áhyggjur af Sérstökum
Hef áhyggjur af Sérstökum. Sé ekki, að Eva Joly haldi lengur í höndina á honum. Komin á kaf í franska pólitík, hefur misst áhugann á Íslandi. Það er skelfilegt, því að allt réttlæti á skerinu kemur að utan. Yfirstétt Íslands er óhæf eins og hún leggur sig. Hjá Sérstökum situr athugun á Landsbankanum á hakanum. Nýtur ósýnilegrar verndar, sem enginn getur klippt sundur. Nema útlendingurinn Eva Joly. Sem ekki er frændi neins. Ekki í klúbbi með neinum. Ekki í flokki með neinum. Og nýtur ekki peninga frá skúrkum. Getið þið kæru landsmenn ekki sent Joly bænarskrá um að koma aftur og kippa í Sérstakan.
|
|
01.09.2010
Þáttaskil í mannréttindum
Bezta breytingin á ríkisstjórninni er að fá loksins innanríkisráðherra, sem ekki er fasisti. Ögmundur Jónasson er alls ólíklegur til að styðja forvirkar aðgerðir gegn borgurum landsins. Eða að setja rafbyssur á fjárhagsáætlun lögreglunnar. Einkum þó er hann líklegur til að taka mildar á málefnum nýbúa og flóttamanna. Vonandi snýr hann upp á handlegg Útlendingastofnunar, sem hagar sér eins og argasti bófi. Þar þarf raunar að henda út tugum lagatækna, sem eru áskrifendur að kaupi. Mundi spara ríkinu langþráð fé. Með Ögmundi í innanríkisráðuneytinu verða vonandi þáttaskil í mannréttindum á Íslandi.
|
|
01.09.2010
Farið hefur fé betra
Ragna Árnadóttir hefur verið hægri sinnuð sem ráðherra, hlynnt lögregluríki Ríkislögreglustjóra og Útlendingastofnunar. Í stíl Björns Bjarnasonar, átti ekki heima í þessari ríkisstjórn. Frábært að losna við hana. Gylfi Magnússon hefur staðið vörð um gamla bankakerfið. Hafnaði siðvæðingu banka og afnámi bankaleyndar. Frábært að losna við hann. Því miður er brottför þeirra of sein, skaðinn er að mestu skeður. Ríkisstjórnin hefur misst frumkvæðið og hrekst um brimgarða almenningsálits. Fólk telur réttilega, að hún hafði ekki stuðlað að nýju Íslandi í stað hins gamla, spillta. En farið hefur fé betra.
|
|
31.08.2010
Björgólfur gerði ekki upp
Björgólfur Thor Björgólfsson er að því leyti verri en aðrir hrunverjar, að hann lýgur um uppgjör skulda. Segist hafa gert upp skuldir að upphæð 1200 milljörðum króna. Neitar auðvitað að svara, hvort hann hafi greitt. Það gerði hann nefnilega ekki, samdi bara um málið. Skilningur þjóðarinnar er, að uppgjör fjárglæframanna felist í, að þeir borgi skuldir sínar og skuldir fyrirtækja sinna. Ekki að þeir fái afslátt af skuldum. Ekki að hlutafélög séu undanþegin uppgjörinu. Þegar Björgólfur þykist hafa gert upp skuldir sínar, þá lýgur hann einfaldlega. Hefur blekkt marga, en þetta er of vírað.
|
|
31.08.2010
Grunsamlegur stuðningur
Árni bæjó Sigfússon vill, að ríkið leigi aðstöðu á Keflavíkurvelli handa skrítnu fyrirtæki, sem á stríðsþotur. Tvennt er athugavert. Í fyrsta lagi er grunsamlegt, að fyrirtækið hefur reynt víðar að fá aðstöðu, en ekki fengið. Finna þarf, hvers vegna það var þar ekki velkomið. Þá fyrst er hægt að skoða málið. Í öðru lagi er grunsamlegt, að Árni skuli mæla með fyrirtækinu. Slík meðmæli óráðsíu-meistarans eiga að vera sjálfvirk ástæða til þess að fara varlega. Við skulum fá betri upplýsingar um fyrirtækið áður en við föllum fyrir enn einni kanínu sjónhverfingamannsins í gjaldþrota Reykjanesbæ.
|
|
31.08.2010
Starfslok óreiðumanns
Sé ekki heila brú í að afhenda Jóhannesi í Bónus níutíu milljónir og tólf mánaða laun fyrir að fara. Gjaldþrota menn verða bara gjaldþrota án slíks. Hef bara aldrei heyrt um slíkt áður. Satt að segja er þetta glórulaust og sýnir, að stjórnendur Arion-banka eru tossar. Allt er athugavert við meðferð bankans. Fyrri eigendur fyrirtækja fá ekki starfslokasamning. Þeir eru ekki manna færastir til að reka fyrirtæki, þeir hafa sannað hið þveröfuga. Banki skuldar óreiðumönnum ekki eina krónu umfram það, sem þeir hafa áður haft af bankanum. Stjórnendur Arion eiga að vera á fjalli með hinum bjöllusauðunum.
|
|
31.08.2010
Jónmundur var stöðvaður
Jónmundur Guðmarsson ætlaði sem bæjarstjóri á Seltjarnarnesi að græða eins og Árni Sigfússon í Keflavík. Varð meðeigandi og stjórnarmaður í fyrirtæki, sem vildi kaupa eignir hreppsins og leigja síðan hreppnum. Góðir menn sáu, hvað var að gerast og komu Jónmundi burt. Hann er núna forstjóri stærsta glæpafélags landsins. Árni fékk hins vegar að selja eignirnar og borgar núna leigu án þess að eiga aur fyrir henni. Hann ákvað líka að byggja álver, þótt ekki væri til rafmagn og enginn gæti kríað út lán fyrir því. Hann fékk góðan stuðning í kosningunum og nú er Reykjanesbær kominn verðskuldað á hausinn.
|
|
31.08.2010
Stórfrétt: Lomborg skipti um skoðun
Frétt ársins birtist í morgun í Guardian. Bjørn Lomborg hefur snúið við blaðinu. Frægasti andstæðingur aðgerða gegn loftslagsbreytingum segir núna, að stórauka þurfi framlög í baráttuna gegn breytingum af mannavöldum. Kemur fram í nýrri bók hans, sem væntanleg er í september. Af því tilefni tók Guardian viðtal við hann. Þar kemur fram, að mislukkaða loftslagsáðstefnan í Kaupmannahöfn fékk hann til að endurmeta málið. Nú þarf Friðrik Arngrímsson hjá landssambandi kvótagreifa að láta þýða nýju bókina eins og hina fyrri. Og nú getur Rajendra K. Pachauri hætt að líkja Lomborg við Adolf Hitler.
|
|
30.08.2010
Orðhenglar Gnarristans
Stjórnarformaður Orkuveitunnar og Gnarristi hækkaði misjafnt hina ýmsu þætti þjónustunnar, sem Orkuveitan rukkar fyrir. Hækkaði lítið þá þætti, sem eru í samkeppni við aðra orkusala. En hækkaði þeim mun meira þá þætti, sem njóta skjóls einokunar. Þannig tryggir Haraldur Flosi Tryggvason, að fólk geti ekki vikið sér undan okrinu. Orðalag hans í sjónvarpinu sýnir, að hann er á sama báti og pólitíkusar. Notar orðhengilshátt til að sýna fram á, að svart sé hvítt. Haraldur Flosi hefur langa reynzlu í að níðast á almenningi sem yfirlagatæknir lögbrjótsins Lýsingar. Og líka reynslu af kennitöluflakki.
|
|
30.08.2010
Vangefnar reglur hússins
Stundum er sagt, að ég taki of djúpt í árinni, þegar ég segi þjóðina vera vangefna. Það er rangt, ég dreg styttri stráin. Skoðið dæmi um bílstjóra, sem koma í Leifsstöð að sækja farþega fyrir hótel eða fyrirtæki. Þeir eru með spjald með nafni hótelsins eða fyrirtækisins, svo að farþeginn snúi sér til þeirra. Þá koma öryggisverðir Leifsstöðvar og segja bílstjórunum, að bannað sé að auglýsa í Leifsstöð. Vísa í reglur hússins. Þetta er gott dæmi um, að ráðamenn og öryggisverðir Leifsstöðvar stíga ekki í vitið frekar en aðrir Íslendingar. Þetta sama lýsir sér í afstöðu til IceSave og Gnarr-isma.
|
|
30.08.2010
Braskfíkn bæjarstjórans
Árni Sigfússon bæjarstjóri hefur lengi verið á kafi í braski. Hefur falsað reikninga Reykjanesbæjar til að þeir sýni ekki gjaldþrot bæjarins. Gott dæmi um eiturlyf braskfíknar. Reykjanesbær lifir ekki, nema óskir rætist um álbræðslu, sem vantar innstungu fyrir rafmagn. Aðrir málsaðilar eru í sömu eiturvímu. Fjárfestu út á braskáráttu, standa núna ærulausir. Lándardrottnar hafa snúið baki við Reykjanesbæ eins og Orkuveitunni, Landsvirkjun og HS Orku. 1,8 milljarðar eru fallnir á Reykjanesbæ og verða ekki greiddir. Hver vill taka Árna á bakið og borga fyrir braskfíknina? Ég veit ekki um neinn.
|
|
30.08.2010
Skjaldborg ráðamanna
Klemma pokaprestanna er ekki að hafa veitt fórnardýrum kirkjuskrímslisins ónóga hjálp eins og Hjálmar Jónsson heldur fram. Afsökun út af því stoðar lítt. Klemma þeirra felst í að hafa vitað um atferli skrímslisins og hafa samt slegið skjaldborg um það. Reynt að sannfæra konurnar um að falla frá aðgerðum gegn Ólafi Skúlasyni. Þeir voru partur af skjaldborg ráðamanna kirkju og þjóðar. Í þessari skjaldborg voru líka Davíð Oddsson og Vigdís Finnbogadóttir og aðrir hræsnarar yfirstéttarinnar. Karl Sigurbjörnsson og Hjálmar Jónsson eiga að biðjast afsökunar á aðild sinni að skjaldborginni.
|
|
30.08.2010
Tíminn stendur kyrr
Annað hvort er ég orðinn magur eða Ítalía feit, því að nú er pláss í bekkjum og stólum. Því get ég fylgt afastrákunum, sérfræðingum í pitsum og pöstum, sem segja þær svaka góðar á Ítalíu. Appelsín-glösin taka líka hálfan lítra og svo er íspinni ókeypis í eftirrétt. Fékk mér fisk dagsins að venju. Lúðan var fín, matreiðslan eins og fyrir rúmu ári. Smálúða með sveppum og blaðlauk í hvítvíns-rjómasósu og hvítum kartöflum. Tíminn stendur hér kyrr. Þröngur og notalegur og ætíð fullsetinn. Mikið skvaldur, ekta ítalskt. Gæðin traust, enda stjórna hér Ítalir. Pítsur og pöstur kosta 2350 krónur, fiskur 3250.
|
|
29.08.2010
Samfylkingin ekki stjórntæk
Samfylkingin tekur formlega séð þátt í að hreinsa skítinn eftir sig frá stjórn Ingibjargar Sólrúnar. Hefur samt ekki misst trú á forsendu hrunsins, Blair-ismanum. Félagsráðherra treður hrunverjum í kerfið. Orkuráðherra telur enn, að stóriðja sé frábær. Leitun er að náttúruvænni hugsun í fremstu röð Samfylkingarinnar. Telur unnt að brúka fasista í innanríkisráðuneytinu og bankaleyndarsinna í bankaráðuneytinu. Þótt Steingrími takist að rétta við ríkisfjármálin, er siðvæðing ríkis og banka meira eða minna í lamasessi. Og Samfylkingin nær engu sambandi við þjóðina í skuldum fólks og málum Evrópu.
|
|
29.08.2010
Kemur ævinlega af fjöllum
Gylfi Arnbjörnsson kemur ævinlega af fjöllum, þegar rætt er um afleiðingar gerða hans. Kvartar yfir verðhækkun á rafmagni. Stafar samt af linnulausri kröfu hans um boranir Orkuveitunnar um alla Hellisheiði. Til að halda uppi atvinnu við boranir. Orkuveitan safnaði skuldum vegna þessa og getur ekki borgað þær með nýjum lánum. Gylfi gengur lengra en flestir aðrir í þrammi af fjöllum. Hefur breytt Alþýðusambandinu í baráttustofnun fyrir nýjum og nýjum álbræðslum. Til þess eins að efla atvinnu Kínverja og Portúgala, samanber Kárahnjúka. Sú virkjun markaði tímamót í brotthvarfi Alþýðusambandsins frá hagsmunum alþýðunnar yfir til hagsmuna atvinnurekenda, einkum álbræðslna.
|
Næsta síða
Greinar sem á eftir að sýna: 8454
|
Kennslubók í blaðamennsku
Reglur Jónasar um stíl:
- Skrifaðu eins og fólk, ekki eins og fræðimenn.
- Settu sem víðast punkt og stóran staf.
- Strikaðu út óþörf orð, helmingaðu textann.
- Forðastu klisjur, þær voru sniðugar bara einu sinni.
- Keyrðu á sértæku sagnorði og notaðu sértækt frumlag.
- Notaðu stuttan, skýran og spennandi texta.
- Sparaðu lýsingarorð, atviksorð, þolmynd og viðtengingarhátt.
- Hafðu innganginn skýran og sértækan.
|
|
|
|