IceSave veðsetti þjóðina

Punktar

Hver gaf leyfi fyrir veðsetningu þjóðarinnar á brezkum lánamarkaði? Voru það Bjöggarnir einir og bankastjórarnir Halldór J. Kristjánsson og Sigurjón Þ. Árnason? Kom fjármálaeftirlitið að því og þá hvaða starfsmenn? Voru það ráðherrarnir Árni M. Mathiesen og Björgvin G. Sigurðsson? Var það Davíð Oddsson í Svörtuloftum? Geir H. Haarde virðist ekki hafa vitað og virðist hafa verið seinn að fatta. Hver ber ábyrgð á 500 milljarða króna IceSave-veðsetningu? Það er spurning dagsins. Aukaspurning dagsins er: Hvers vegna verðlaunar fjármálaeftirlitið Halldór Kristjánsson og Sigurjón Árnason?