IceSave númer fjögur

Punktar

Baldur Guðlaugsson gerði IceSave samning númer eitt fyrir hönd löglega valinna stjórnvalda. Áður höfðu ráðherrarnir Árni, Geir og Ingibjörg og seðlabankastjórinn Davíð lofað að borga. Marglofað öllum, sem heyra vildu, Norðurlöndunum, Alþjóða gjaldeyrissjóðnum, Bretlandi og Hollandi. Alþingi samþykkti síðan að ganga frá málinu í samræmi við samning Baldurs. Síðan höfum við verið í vandræðum um málið. Nú á að fara að greiða atkvæði um IceSave númer fjögur. Við erum siðferðilega skyldug til að haga okkur eins og siðað fólk. Og hagkvæmast er jafnan fyrir okkur að ljúka leiðindamálum.