Iceland Foods verzlanakeðjan í Bretlandi hefur snarhækkað í verði síðustu daga að mati Financial Times. Verðið er komið upp í 370 milljarða króna. Orðið miklu hærra en mat skilanefndar Landsbankans á öllum eigum bankans í útlöndum. Hækkunin ein er hærri en matið á verðgildi Iceland Foods í mati skilanefndarinnar. Það þýðir, að Landsbankinn gamli á fyrir kröfunni. Að íslenzka ríkið þarf ekki að greiða neitt. Þrotabúið fær þar á ofan töluvert upp í vextina. Ekkert af IceSave verður þá lagt á börnin. IceSave var lítill vandi fyrir breytinguna, en er nú enginn orðinn. Nógur er vandi okkar samt.