Í landsins versta félagsskap

Punktar

Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingrím J. Sigfússon setur niður við að skrifa áramótagreinar í landsins mesta sorprit. Af hverju skrifa þau þá ekki líka á AMX? Mogginn er Völkischer Beobachter landsins. Undir ritstjórn manns, sem framleiddi hrunið á marga vegu. Sem hugmyndafræðingur, forsætisráðherra og seðlabankastjóri. Hann er veruleikafirrtur með öllu og rekur blaðið til að leiðrétta Íslandssöguna. Sárafáir lesa sorprit hans, sem hefur ekkert vægi í samfélaginu. Ekki er nóg að hafa afsakanir í inngangi þessara greina. Siðað fólk á að hafna öllum samskiptum við dreggjar samfélagsins, Davíð Oddsson.