Kristján Sveinbjörnsson, bæjarfulltrúi á Álftanes, ætti ekki að láta mikið fara fyrir sér eftir gjaldþrot hreppsins. Hann tók þátt í afspyrnu róttæku fjárfestingarsukki, sem meðal annars kom fram í flottustu sundlaug landsins. En Kristján biðst ekki afsökunar á óráðsíu sinni, síður en svo. Drambsfullur kveður hann sér hljóðs í Fréttablaðinu og segir vonda aðila spilla fyrir hreppnum. Nefnir sérstaklega Fréttablaðið, Jöfnunarsjóð sveitarfélaga og Sjálfstæðisflokkinn. “Sumir jafnari en Álftnesingar” segir fyrirsögn hans. Þarna kveinar og heimtar dæmigerður Íslendingur í botnlausri afneitun.
