Horfði á glæsilegt maraþon úr stofuglugganum hjá mér. Athygli mína vakti berserksgangur bílstjóra, sem óku hratt með og móti hlaupafólkinu. Mér finnst furðulega margir Íslendingar keyra bíla eins og þeir séu í stríði, titrandi af bræði. Það er eins og eitthvert innibyrgt hatur ráði akstri sumra bílstjóra. Hef keyrt í Bandaríkjunum og Vestur-Evrópu og ekki séð glæfraakstur eins og hér. Sumir keyra aggressíft, jafnvel ögrandi, öfugt við flesta Bandaríkjamenn, sem aka varfærið. Þjóðverjar aka hratt eins og Íslendingar, en fara eftir reglum. Er hvergi hræddur í umferðinni nema hér.
