Hverful Evrópuást

Punktar

Tveir þriðju hlutar Íslendinga munu ekki styðja umsókn um aðild að Evrópu, þegar til kastanna kemur. Mæling í skoðanakönnun í upphafi kreppunnar segir aðeins frá stemmningu dagsins. Fólk er núna skelfingu lostið yfir falli krónunnar og himinháum vöxtum. Þegar hagkerfið hefur náð nýju jafnvægi, mun ástin á Evrópu hjaðna niður í hálfa þjóðina. Þegar kemur að atkvæðagreiðslu mun svo þjóðrembingur láta til sín taka. Þá verða dregnir fram landvættir, fjallkonan og sagnfræðibull Hriflu-Jónasar. Guðni mun kyssa kýr og kindur og mála spænska ryksugutogara á vegginn. Þá mun falla umsókn um aðild.