Hver er að rannsaka Davíð?

Punktar

Hver er að rannsaka Davíð Oddsson? Ekki Sérstakur. Davíð gaf þó út ástarbréf til bankabófa, sem gerðu Seðlabankann gjaldþrota. Hann hélt þó krónugenginu föstu í sex klukkustundir 8. október 2008. Meðan innvígðir hreinsuðu upp gjaldeyrisforðann. Hann lét áður falsa bókhald Seðlabankans. Til að gera bönkunum kleift að stunda rán víðs vegar um Evrópu. Þá varð IceSave til. Hvernig stendur á, að maður gengur laus, sem olli þjóðinni tjóni upp á mörg hundruð milljarða. Kannski þúsund milljarða. Eitthvað meira en lítið er bogið við, að hvergi í kerfinu er verið að rannsaka glæpi seðlabankastjóra.