Ýmsar athyglisverðar tillögur eru í skýrslunni um ferðamál Íslands, sem bandarískt fyrirtæki gerði á vegum þróunarsjóðs Sameinuðu þjóðanna. Þar er lagt til, að á næstu fjórum árum verði rúmlega tveimur milljörðum króna varið til að byggja upp ferðamannaþjónustu hér á landi. Verði fé þetta lagt fram af einkaaðilum, ríki og sveitarfélögum, svo og alþjóðlegum lánastofnunum.
Þetta er mikið fé, en verkefnin, sem bent er á í áætluninni, eru líka mörg og viðamikil og líkleg til að auka verulega tekjur þjóðarinnar af ferðamálum. Eitt fjárfrekasta og nauðsynlegasta verkefnið, sem bent er á, er bygging 200 herbergja hótels með ráðstefnuaðstöðu í Reykjavík. Sú bygging á að kosta rúmlega hálfan milljarð króna.
Í áætluninni er því haldið fram, að Íslendingar eigi einmitt mesta möguleika á sviði alþjóðlegra ráðstefna. Það þyki nýstárlegt og sérstætt að halda ráðstefnur á Íslandi og sjálfsagt sé fyrir okkur að stuðla að slíkri þróun. Einkum sé mikilvægt að fá þessar ráðstefnur utan mesta ferðamannatímans, og eru í áætluninni ekki talin veruleg vandkvæði á því.
Einnig er í áætluninni bent á, að erlendir ferðamenn vilji yfirleitt hafa sérbaðherbergi á hótelum. Því miður fullnægja ekki þær heimavistir skóla, sem notaðar eru fyrir sumarhótel, þessu skilyrði. Í áætluninni er hvatt til þess, að framvegis verði sérbaðherbergi á heimavistum, sem byggðar verða á þeim stöðum, þar sem von er ferðamanna. Jafnframt er lagt til, að ríkið greiði skólunum þann kostnaðarauka, sem af þessu hlýzt.
Í áætluninni er lagt til, að ríkið styrki sveitarfélög til byggingar hótela og kosti frágang tjaldstæða, hreinlætisaðstöðu og skála á mörgum ferðamannastöðum. Þrjár nýstárlegar hugmyndir eru í áætluninni. Ein er sú, að komið verði upp eftirlíkingu af gömlu, íslenzku þorpi í nágrenni Reykjavíkur og verði í þorpinu 100 herbergja gistirými fyrir ferðamenn. Er bent á þann möguleika, að þorpið verði byggt í kringum Korpúlfsstaði, og höfuðbóli Thors Jensens verði breytt í hótel. Tilgangur slíks þorps er að gera erlendum ferðamönnum Íslandssöguna áþreifanlega og lifandi.
Önnur hugmyndin er að reisa sérstaka menningarmiðstöð með jarðfræðisafni og Íslandssögusafni, veitingahúsi með íslenzkum mat, svo og upplýsinga- og ferðaskrifstofu. Í áætluninni er talið, að slík miðstöð geti stuðlað að komu ferðamanna hingað árið um kring.
Þriðja hugmyndin er að reisa fyrir rúmar 800 milljónir bað-, skíða- og heilsumiðstöð, t.d. inn af Hvalfirði. Er gert ráð fyrir 200 herbergjum í þessari miðstöð, sem væri heilsuhæli allt árið um kring, skíðahótel á veturna og almennt ferðahótel á sumrum.
Ekki verður annað séð en þessar hugmyndir séu byggðar á vönduðum rannsóknum sérfræðinga þeirra, sem áætlunina hafa samið. Hún ætti því að verða okkur hvatning til að taka til óspilltra málanna og reyna að gera eitthvað af þessum hugmyndum að veruleika, áður en langt um líður.
Jónas Kristjánsson
Vísir