Húsavík: Rafmagn ófáanlegt

Punktar

Síðan Landsvirkjun eignaðist úthaldið á Þeistareykjum er skynsemi að síast inn. Nú segist hún ekki geta útvegað orku fyrir meira en 125 þúsund tonna álver á Bakka. Kannski 180 þúsund tonna, ef álverið taki áhættuna, gangi það ekki upp. Alcoa heimtar samt orku fyrir 360 þúsund tonna álver! Sú orka er einfaldlega ekki til á Þeistareykjum og í Gjástykki. Gráðugir Húsvíkingar geta farið að reyna að koma sér niður á jörðina. Hætt að kenna stjórnvöldum um afleiðingar æðibunugangs. Farið að íhuga, hvað veiti miklu meiri vinnu á svæðinu en heittelskað álið og noti mun minni orku. Svarið við því er: Allt.