Stærðfræðingar hafa komið því svo fyrir, að kosið er á stjórnlagaþing með því að skrifa hundrað tölustafi á blað. Hundrað tölustafi. Hundrað. Auðvitað mega rugl. Margir munu fipast og fleiri munu ekki nenna að puða í kortér-hálftíma í kjörklefanum. Skásta leiðin er að skrifa réttu númerin á blað og hafa það með sér í kjörklefann. Þá þarf bara að skrifa hundrað tölustafina, ekki leita að þeim líka og fara línuvillt. Bezt er að fara í utankjörstaða, því að á kjördegi verður kaos. Með framlengingu mun þó allt ganga upp. En aldrei aftur skulum við hleypa fávísum stærðfræðingum að skipulagi kosninga.