Hugdjarfur hrunverji

Punktar

Sé ekki fyrir mér, að Björgvin G. Sigurðsson geti haft forgöngu um stofnun nýs stjórnmálaflokks. Pólitík er rangur vettvangur hrunverja. Hann slapp með aðstoð Samfylkingarinnar við að vera dreginn fyrir Landsdóm. Mér finnst, að hrunverjar eigi hér eftir að láta pólitíkina í friði. Viðurkenni samt, að þriðjungur kjósenda sættir sig við óhreinsaðan Sjálfstæðisflokk. Helmingur þingmanna Flokksins var í skítamálum fyrir hrun og í hruni. Sá stuðningur er mál hinna víðáttuvitlausu kjósenda Flokksins. Annars staðar í pólitíkinni er ekki pláss fyrir hrunverja. Björgvin ætti að leita sér starfa annars staðar.