Hrunverjar í skattaskjóli

Punktar

Alþjóðleg samtök rannsóknarblaðamanna, ICIJ, fundu nöfn tíu Íslendinga með fé í skattaskjólum. Kemur fram í 2,5 milljónum leyniskjala, sem samtökin öfluðu. Íslenzka skattaeftirlitið fékk þessi nöfn frá brezka eftirlitinu. Ekki er vitað, hvað gerist svo eftir valdatöku hrunverja í ríkiskerfi okkar. Aðrir listar með nöfnum hundrað Íslendinga eru í boði gegn gjaldi á svörtum. Slíkir listar hafa ekki enn verið keyptir. Er ætlunin að halda staðreyndum leyndum fyrir fólki? Fjölmiðlar eru sem lamaðir. Blaðamenn með sambönd við ICIJ ættu að koma nöfnunum tíu á framfæri í fésbók svona til að byrja með.