Berserksgangur er runninn á bófaflokkinn á Alþingi. Froðufellingin snýr að saksóknara Alþingis. Tryggvi Þór Herbertsson líkir Sigríði Friðjónsdóttur við Lavrenty Beria, þekktan fjöldamorðingja og lögreglustjóra Stalíns. Telur eins munu fara fyrir Sigríði og Javert, lögreglustjóra í Vesalingum Victors Hugo, sem fleygði sér í Signu. Tilefni ummælanna er, að saksóknarinn opnaði heimasíðu, þar sem hlaðið er inn skjölum í málaferlum gegn Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætis. Sigríður segir samt síðuna opna fyrir greinargerðum til varnar Haarde. Siðblindi bófaflokkurinn hefur bara hrokkið af hjörunum.