Hringrás orku-skuldaranna

Punktar

Orkuveita Reykjavíkur er á hausnum. Við vissum það og nú hefur Jón Gnarr játað það. Hún getur ekki endurfjármagnað sig. Hún þarf lán fyrir milljarða endurgreiðslum eldri lána og á ekki til fyrir þeim. Við skulum ekki tala um IceSave í leiðinni, það er sagt vera hræðsluáróður. HS Orka, áður Hitaveita Suðurnesja, er einnig gjaldþrota. Þessi tvö fyrirtæki áttu að útvega orku handa álveri í Reykjanesbæ. Björgvin Sigurðssyni hrunráðherra hefur dottið það snjallræði í hug, að Landsvirkjun kaupi Hverahlíðarvirkjun af HS Orku. Samt getur Landsvirkjun ekki einu sinni fjármagnað eigin Búðarhálsvirkjun.