Hreinsunin

Greinar

“Hreinsunardeildin vann í Framsókn” segja menn eftir úrslitin í prófkjörinu í Reykjavík um helgina. Þar með eiga þeir við, að nýir menn brutust í gegn, þrátt fyrir andstöðu flokksvélarinnar eða öðru nafni flokkseigendafélagsins.

Í Reykjavíkurdeildum allra stjórnmálaflokkanna hafa lengi ráðið ríkjum svonefnd flokkseigendafélög. Þar sem Reykjavík ber höfuð og herðar yfir aðra staði, hafa flokkseigendafélögin haft tögl og hagldir í viðkomandi stjórnmálaflokkum.

Í prófkosningum Framsóknarflokks, Alþýðuflokks og Sjálfstæðisflokks í Reykjavík á þessum vetri hafa flokkseigendafélögin fengið herfilega útreið. Alls staðar hafa hreinsunardeildirnar unnið markverða sigra.

Aðeins í Alþýðubandalaginu heldur flokkseigendafélagið fullum völdum. Þar hefur heldur ekkert prófkjör farið fram í Reykjavík, enda er um að ræða íhaldssamasta núlifandi stjórnmálaflokk á Íslandi.

Um helgina komst Guðmundur G. Þórarinsson verkfræðingur í annað sæti lista Framsóknar til alþingis og það gegn fjórföldu bandalagi flokkseigenda. Þar á ofan munaði aðeins hársbreidd, að Kristjáni Friðrikssyni iðnrekanda tækist að velta Þórarni Þórarinssyni alþingismanni úr þriðja sæti niður í fimmta.

Gerður Steinþórsdóttir kennari komst í annað sæti lista Framsóknar til borgarstjórnar og Eiríkur Tómasson lögfræðingur í þriðja sæti. Sá, sum áður var í öðru sæti, Alfreð Þorsteinsson, varð nú að láta sér nægja sjötta sætið.

Flokkseigendafélaginu tókst að ná saman rúmlega þúsund atkvæðum handa Alfreð í fyrsta sæti í borgarstjórnarprófkjörinu og rúmlega fimm hundruð atkvæðum handa Jóni Aðalsteini Jónassyni kaupmanni í alþingisprófkjörinu. En þar með var vindurinn búinn í báðum tilvikum. Alfreð lenti í sjötta sæti og Jón í sjöunda.

Á sömu leið fór í Alþýðuflokknum fyrr í vetur. Þar tapaði flokkseigendafélagið í Reykjavík fyrir Vilmundi Gylfasyni. Hann náði öðru sæti og sennilega þingsæti eins og Guðmundur G. Þórarinsson.

Úrslitin í prófkosningum Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík voru flokkseigendafélaginu þar í óhag. Í efsta sæti lenti sá maður, sem einna mest hefur gagnrýnt flokkseigendafélagið, Albert Guðmundsson. Og til sögunnar kom nýr maður í þingmannssæti, Friðrik Sófusson, er hafði gagnrýnt flokksforustuna.

Enn skýrar kom þetta í ljós í skoðanakönnuninni, sem fylgdi prófkjörinu. Þar hrundu gersamlega sjónarmið flokkseigenda um óbreytt hermang og kaup á Víðishúsi.

Allt, sem hér hefur verið rakið, er borgurum þessa lands tilefni til bjartsýni. Forpokuð og spillt flokkseigendafélög eru að riða til falls og nýir menn eru smám saman að koma til sögunnar.

Vafalaust munu sumir “hreinsunarmanna” valda vonbrigðum. Kannski sameinast þeir eigendafélagi flokks síns og kannski stofna þeir nýtt. Aðrir munu standast slíkar freistingar. Með fjölgun þeirra munu íslenzk stjórnmál smám saman komast á nýtt og æðra stig.

Jónas Kristjánsson

Dagblaðið