Ágæt lausn hefur fundizt á húsnæðisvanda stofnana. Grafin var djúp hola fyrir Árnastofnun. Í holunni við Hótel Sögu hefur lengi verið stöðuvatn, er hentað gæti til geymslu vatnsþéttra skinnhandrita. Nú á að grafa þar aðra holu fyrir Vigdísarstofnun. Forsætis hefur brennandi áhuga á fleiri þjóðþrifaholum. Holu á Þingvöllum fyrir Hótel Valhöll; holu á alþingisreit fyrir skrifstofur Alþingis; og holu í Öskjuhlíð fyrir náttúruminjahús. Jafnvel holu í Efstaleiti fyrir Landspítala. Markaður er fyrir loforð, sem enda í holu. Vantar ykkur eitthvað? Gröfum þá holu, erum svo ofsalega rík. Reynslan sýnir, að hræsni endar í holu.
