Hræfuglar eiga bankana

Punktar

Smám saman kemur í ljós, að illræmdir vogunarsjóðir eru eigendur endurreistu bankanna. Þeir keyptu kröfur í gömlu bankana á 6% af skráðu verði og reyna núna að margfalda þá fjárfestingu. Ætíð svífa hræfuglar að hruni, hvar sem það verður. Sem kröfuhafar gömlu bankanna eru þeir orðnir eigendur að nýju bönkunum. Ljóst er, að þeir hafa ekki þjóðarhagsmuni að leiðarljósi, heldur skjótfenginn gróða. Þannig vinnur Glitnir gegn hagsmunum viðskiptamanna Íslandsbanka og gegn þjóðarhagsmunum. Það var fídus Geirs H. Haarde að leysa mörg mál í senn með aðkomu hræfugla. Sá fídus getur orðið okkur hættulegur.