Ólafur Haukur Johnson ætlar að halda áfram Hraðbraut sinni. Þótt komið hafi í ljós, að hann svindlaði feitt á ríkinu og skattgreiðendum. Samningurinn, sem hann braut kruss og þvers, rennur út á næsta ári. Katrín Jakobsdóttir ráðherra hafði ekki manndóm til að klippa á naflastrenginn. Ólafur dinglar áfram og telur dagana, unz Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir verður aftur menntaráðherra. Þá hefst dansinn kringum gullkálfinn að nýju. Ólafur byrjar að senda reikninga á ríkið í gríð og ergi og fær þá alla borgaða upp í topp. Það er eina stefna Sjálfstæðisflokksins, eftirlitslausa einkavinavæðingin.