Hótel á 3000-5000 krónur

Punktar

Þegar við erum í nokkur ár búin að fljúga fram og aftur til útlanda fyrir 20000 krónur, er auðvitað lengi búið að vera úrelt að borga sömu upphæð fyrir hverja nótt á hóteli. Nú er flugfélagið EasyJet farið að bæta úr þeirri skák með því að bjóða upp á skúffuhótel í miðborgum stórborga, þar sem menn borga 3000-5000 krónur fyrir nóttina í pínulitlu og gluggalausu herbergi, sem er eigi að síður hreint og með eigin klósetti, vaski og sturtu. Þessi nýja stefna á eftir að breiðast út með ógnarhraða rétt eins og lággjaldaflugið á sínum tíma. Menn fá stöðluð lágmarksgæði á B&B verði.