Horfnir nautnaseggir hvalkjöts

Punktar

Flutningur á hvalkjöti til Japans er brölt, en ekki sala. Kristján Loftsson hjá Hvali hf. og Einar K. Guðfinnsson fullyrtu, að þetta væri sala. Japönsk yfirvöld kannast hins vegar ekki við, að hvalur hafi verið tollafgreiddur. Fari svo, að hvalurinn komist löglega inn í landið, verður þrautin þyngri að gefa hann á kostnað Kristjáns. Nautnaseggir hvalkjöts fara yfir móðuna miklu og nýjar kynslóðir heimta kjúkling. Vissulega er fínt, ef brölt Kristjáns og Einars slátrar framboði Íslands til Öryggisráðsins. En það er eigi að síður brölt. Enn er ekki hægt að segja markað vera fyrir hvalinn.