Hobbitar voru til

Punktar

Vísindamenn hafa að sögn Ian Sample hjá Guardian staðfest, að bein, sem fundust á eyju við Indónesíu séu úr smávöxnu mannkyni, sem lifði fyrir 18.000 árum innan um nokkurra metra langa dreka, risavaxnar rottur og fíla á stærð við hesta. Hafnað hefur verið hugmyndum um, að þetta hafi verið dvergvaxnir menn, öngstræti af Homo Sapiens. Þetta var sérstakt kyn fólks, sem var einn metri á hæð og hafði að öðru leyti flest einkenni manna með vel þróaða heila. Talið er, að fólk þetta hafi notað ýmis einföld verkfæri í lífsbaráttu við erfiðar kringumstæður.