Hiti og svif í sjónum

Punktar

Vísindamenn við bandarísku NASA geimvísindastofnunina og víðar velta fyrir sér, hvort hækkað hitastig á jörðinni í kjölfar mengunar loftsins eigi þátt í 6% minna lífmagni svifs við yfirborð sjávar, sem gerzt hefur á sama tíma. David Perlmann ræðir í San Francisco Chronicle við Watson W. Gregg hjá geimvísindastofnuninni og fleiri fræðimenn, sem hafa miklar áhyggjur af þessum tengslum.