Hirð Þorgeirs svitnar

Punktar

Misnotaður Lífeyrissjóður verzlunarmanna getur ekki komizt undan rannsókn á vinnubrögðum fyrrverandi forstjóra og hirðar hans. Í forstjóratíð Þorgeirs Eyjólfssonar varð sjóðurinn samofinn Kaupþingi og helztu sápukúlum þess, Existu, Skiptu og Bakkavarar. Eiginkonur og afkvæmi forstjórans og lögmanns hans skipta máli í þeim vefnaði. Tveir stjórnarmenn í VR hafa kært hirð Þorgeirs. Hann ber við bankaleynd, en Fjármálaeftirlitið úrskurðar, að hún eigi ekki við lífeyrissjóði. Gott er, að rannsóknir á sukki fjármálastofnana ná einnig til slíkra sjóða, sem eru í eigu almennings. Að nafninu til.