Hinn illi öxull snýst

Punktar

Í fertugasta sinn í þágu Ísraels hefur Bandaríkjastjórn beitt neitunarvaldi í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Gegn atkvæðum allra annarra ríkja öryggisráðsins hafnaði Bandaríkjastjórn gagnrýni á stjórn Ísraels fyrir morð á starfsmönnum Sameinuðu þjóðanna 21. nóvember og 6. desember og markvissri eyðingu matarbirgða samtakanna í Palestínu 1. desember. Með þessari síðustu beitingu neitunarvalds hefur Bandaríkjastjórn lýst starfsmenn Sameinuðu þjóðanna í Palestínu réttdræpa og eignir Sameinuðu þjóðanna þar í landi friðlausar. Þannig snýst illur öxull samstarfs tveggja hættulegustu ríkja heims. Lesið grein Stephen Zunes, prófessors við háskólann í San Fransisco.