Hið smáa verður sterkt

Punktar

MP Banki fældist áhættu meðan stóru bankarnir sóttust eftir áhættu og veltu sér upp úr rugli. Litli bankinn sóttist eftir ríkisskuldabréfum fremur en innantómum pappírum viðskiptajöfra. Nú blaktir MP-Banki, en stóru bankarnir eru fyrir löngu farnir á hausinn. Erlent fjármagn er meira að segja komið í MP Banka. Það sýnir, að fjármagn finnst, ef fyrirtæki er ábyrgt. Því miður eru fá fyrirtæki ábyrg og eiga því erfitt með að fá fjármagn. Líklegt er, að banki, sem nýtur trausts í útlöndum, muni líka njóta trausts almennings hér heima. Þannig vex hið smáa og verður sterkt, meðan hið stóra deyr úr græðgi.