Herinn verndar auðmennina

Punktar

Bandaríski herinn hefur tekið völdin á Haiti. Markmiðið er ekki að hjálpa fátæklingum, heldur að verja eignir auðmanna. Flug með hergögn hefur forgang fram yfir flug með hjálpargögn. Flugvélum með hjálpargögn er stundum bannað að lenda á flugvellinum í Port-au-Prince. Auðmenn á Haiti hafa góð sambönd inn í bandaríska stjórnkerfið. Þegar innviðir samfélags rústast, er hætta á, að eignir auðmanna verði fyrir hnjaski. Verkefni bandaríska hersins er að hindra það. Bandaríkin hafa lengi haft mikil áhrif á eyjunni. Hafa yfirleitt stutt einræðisherra, sem kúga almenning. Papa Doc var frægasti leppurinn.