Herferðin gegn þjóðaratkvæði

Punktar

Mistekizt hefur herferð Evrópuandstæðinga gegn þjóðaratkvæðagreiðslunni um aðild að Evrópusambandinu. Andstæðingar aðildar skiptast nú í tvo jafna hópa. Þá, sem eru andvígir aðild OG atkvæðagreiðslu um aðild. Og þá hógværu, sem vilja láta atkvæðagreiðslu skera úr. Raskar að vísu ekki meirihluta gegn aðildinni, en laskar meirihlutann eigi að síður. Andstæðingar aðildar hefðu náð betri samstöðu, hefðu þeir sætt sig við viðræður. Hverjar sem þær eru, aðildar-, aðlögunar- eða afvötnunarviðræður. Ég tel það síðasta, enda vilja landbúnaðar- og sjávarútvegsráðuneytin ekki láta breyta sér í ráðuneyti.