Hent inn lykunum

Punktar

Vandamál heimilanna eru ekki vandamál allra heimila. Níu af hverjum tíu hafa fulla atvinnu og níu af hverjum tíu geta staðið við skuldbindingar sínar. Ekki ólíkt því, sem er í öðrum ríkjum, þótt þau séu ekki hrunin. Ekki heldur ólíkt því, sem var áður hér á landi. Vandinn er vissulega stór, en langt frá því eins mikill og haldið er fram. Ef ekki nægir að lengja í skuldum fólks, ber að auðvelda fólki að standa upp frá eigna-og-skuldadæminu. Þannig er það í Bandaríkjunum. Fólk hendir inn húslyklum og er laust allra mála. Skuldar engum neitt og á ekki neitt. Getur byrjað nýtt líf hvar sem er í Evrópu.