Á Kaldbak er heitt á daginn. Hitinn fer helzt niður fyrir tuttugu gráður um nætur. Hér er líka þurrt, Í vikunni kom ein hellidemba, svo að þjóðvegurinn flaut í vatni. Kortéri síðar var aftur komið ryk. Eiginlega er hér veður að hætti meginlanda, hnúkaþeyr úr austri, hellidemba kl.16. Ég á að vera að þjálfa hesta fyrir langferð um Norðausturland. En hestarnir nenna ekki að sinna mínu stressi og vilja bara liggja í haganum. Þeir horfa á mig eins og eitthvert fyrirbæri og hreyfa sig ekki. Ég tek því bílinn og skutlast niður að Flúðum til að útvega mér jarðarber til að hafa með súkkulaði og rjóma.
