Helgi Bernódusson ritskoðar

Punktar

Alþingi hefur skýran stíl. Hefur sagt upp áskrift að DV. Allt þetta ár hefur blaðið borið af öðrum fjölmiðlum, einkum í rannsóknum, sem varða hrunið. Mjög slæmt er, ef alþingismenn fylgjast með sannleikanum á síðum DV. Þeir gætu farið að haga sér öðruvísi en til er ætlast. Til dæmis mætt á þingi í háskólabol. Helgi Bernódusson alþingisforstjóri passar að raska ekki ró aumingjanna. Mikilvægt er, að þeir fatti ekki veruleikann. Ég óska bezta rannsóknarblaðamanni landsins, ritstjóranum Reyni Traustasyni, til hamingju. Með þá virðingu, sem Alþingi sýnir tilraunum til að grafa upp sannleikann.