Endurreistu bankarnir notuðu hluta af tannfé ríkisins í styrk til eigenda peningamarkaðsreikninga. Ég varaði eindregið við því þá þegar. Nú hefur sparisjóðurinn Byr niðurgreitt slíka reikninga hjá sér og vill fá til þess ríkisstyrk. Minni fjármálastofnanir hafa fengið neitun og hyggjast höfða mál gegn ríkinu. Vilja fá sömu fyrirgreiðslu og bankarnir. Í kjölfarið koma svo lífeyrissjóðirnir og séreignasjóðirnir, sem segja, að ekki megi skilja sína kúnna eftir. Þeir hafi tapað 15-20% og eigi líka að fá ríkisstyrk. Á endanum borga börnin okkar og barnabörnin alla þessa vitleysu. Sem skattgreiðendur.