Heimsveldi á undanhaldi

Punktar

Þótt Pakistan lifi á framlögum Bandaríkjanna, fæst ríkið ekki til að hætta stuðningi við talíbana í Afganistan. Gott dæmi um minni áhrif Bandaríkjanna í heiminum. Lekarnir á Wikileaks sýna heimsveldi á skipulögðu undanhaldi. Á fáum stöðum í heiminum eru bandarísk fyrirmæli tekin alvarlega. Helzt er það í Bretlandi, að ráðamenn eru púðluhundar Bandaríkjanna. Og á Íslandi, þar sem orkuskattur álvera lækkaði úr krónu í tólf aura fyrir tilmæli sendiráðs Bandaríkjanna. Þeir tímar eru þó liðnir, þegar Björn Bjarnason og Davíð Oddsson voru á hnjánum að grátbiðja um framlengda dvöl á Keflavíkurvelli.