Ég var hafður að fífli eins og sumir fleiri. Hélt, að heimavarnarliðið gætti hagsmuna lítilmagnans. DV flettir hins vegar í dag ofan af samtökunum. Þau hindruðu í gær yfirtöku Landsbankans á húsi Nordic Workers. Verktaka, sem var kominn í þrot fyrir hrun. Hin meintu hjálparsamtök eru í hagsmunastríði fyrir illa rekið fyrirtæki utan tilveruréttar. Á sama tíma erum við einnig blekkt af tunnuliði. Það berst í rauninni fyrir lífsstíl millistéttarfólks, sem ætlaði að gleypa sólina fyrir hrun. Býr í raðhúsi, ekur um á upphækkuðum jeppa og stundar utanferðir. Mótmælaaldan er komin út í rugl græðgisfólks.