Margir stuðningsmenn dómstólaleiðar í IceSave eru helteknir af Njálu. Þeir fjalla um sjaldséð hugtök á borð við “ólögvarða kröfu” og “lýriti” og “óútfylltan víxil”. Framarlega í þessum hópi eru lagatæknar, sem heilluðust af lagakrókum Sigurðar Líndals prófessors. Þeim finnst það hápunktur lífsins að komast í málaferli. Raunar tilgangur lífsins. Siðuðu fólki finnst hins vegar sættir vera meira virði en dómsmál. Siðað fólk leggur áherzlu á siðferði og hagsýni í daglegu lífi fremur en á lagatækni og lagakróka. Það vill lifa siðuðu og hagsýnu lífi í sátt við nágranna í öðrum ríkjum.