Hefðbundið flugklúður

Punktar

Þórarinn Stefánsson, toti.hexia.net, lýsir ástandi, sem ég þekki vel: Vél Icelandair eða Iceland Express lendir á öðrum stað en ætlað var. Einn var að afgreiða vandræði heillar flugvélar í Glasgow í gær. Ljóst var, að fáir færu langt þann dag. Allt var í kaos, engin viðbragðsáætlun til. Þórarinn hafði einfalda tillögu: “Réttið upp hönd, sem vilja bara fara á hótel og bíða eftir hringingu. Við reddum ykkur áfram á morgun. Taka niður nöfn og gemsanúmer, útdeila voucherum, senda fólkið burt. Díla við þau 30%, sem eftir standa.” Reiði farþega er lágmörkuð. Illa rekin félög skilja ekkert.