“Lífeyrissjóðirnir voru á haugafylleríi með mestu og verstu gangsterum þessa lands og fíluðu það í ræmur.” Þetta sagði Bjarni Harðarson í bloggi sínu um daginn og hefur rétt fyrir sér. Hafandi tapað 500-700 milljörðum af peningum alþýðunnar birta lífeyrissjóðirnir síðan skýrslu um geðveikina. Þar segir, að lífeyrissjóðirnir beri ekki ábyrgð, hafi engar reglur brotið og séu bara yfirhöfuð saklausir. Þetta er aldeilis hvítþvottur í lagi. Enn eru víðast við völd í lífeyrissjóðunum sömu fylliraftarnir og áður. Akkúrat þeir sem ollu lífeyrisþegum landsins tjóni, er nemur tíföldu tjóni af völdum IceSave.
