Harmsaga fyrningarinnar

Punktar

Ríkisstjórnin hefur treggáfaðan ráðherra, sem klúðrar öllu. Jón Bjarnason hagsmunaráðherra hafnaði einfaldri kröfu þjóðarinnar um fyrningu kvótans. Ágreiningurinn átti bara að vera um árafjölda fyrningarinnar. Í staðinn skipaði hann sáttanefnd hagsmunaaðila, sem komst að allt annarri niðurstöðu. Að lokum bjó ráðherrann til frumvarp, sem var hvorki samkvæmt þjóðarvilja né vilja hagsmunaaðila. Þess vegna nýtur frumvarpið einskis fylgis á Alþingi. Kvótagreifarnir hafa svo meirihluta á þingi, stjórna þingliði Sjálfstæðis og Framsóknar, svo og nokkrum þingmönnum Samfylkingarinnar og Vinstri grænna.