Hanna Birna og fylgishrunið

Punktar

Fréttablaðið kannaði skoðanir í gær, þegar rykið af hrókeringum vikunnar hafði setzt. Samt sýndi könnunin, að nýi meirihlutinn í Reykjavík er nánast fylgislaus. Fylgi Sjálfstæðisflokksins er minna í samstarfi við Óskar en það var í samstarfi við Ólaf. Fylgi Óskars er jafn lítið og fylgi Ólafs. Þetta þýðir, að fólk sér almennt gegnum skrípaleik nýja meirihlutans og fyrirlítur hann. Áratugum saman hafði Sjálfstæðisflokkurinn helmings fylgi í Reykjavík. Það er saga til næsta bæjar, að fylgið er komið niður í fjórðung. Við skulum þakka Davíð og Hönnu Birnu Kristjánsdóttur fyrir það.