Hanga eins og hundar á roði

Punktar

Lilja, Atli og Ásmundur eru ófær um lýðræðisferli. Hanga bara á sínu eins og hundar á roði. Eru ekki fær um að virða leikreglur lýðræðis. Spóla bara í sama farinu. Vísa í stefnu flokksins, þótt þau hafi upphaflega samþykkt ríkisstjórn, sem er skrifleg málamiðlun milli flokka. Þegar þau ná ekki sínu fram í einu og öllu, fara þau í baklás. Þau eru þvergirðingar, reiðubúin að fórna ríkisstjórn fyrir sín sérmál. Fullfær um að hleypa hrunverjum til valda að nýju. Því að þau hata samflokksfólk sitt meira en hrunverjana. Ég öfunda engan af að telja sig þurfa að reyna að halda frið við þvergirðinga.