Handónýt hönnun Vatnsmýrar

Punktar

Smám saman er að koma í ljós, hversu víðáttuvitlaus var verðlaunahönnun Vatnsmýrar. Hún uppskar nærri einróma fögnuð á sínum tíma, ég skrifaði einn gegn henni. Nú hefur hinn “einangraði” borgarstjóri bætzt í hópinn. Komið hefur í ljós, að hönnunin gerir hvorki ráð fyrir umferðaræðinni Hlíðarfæti né Öskjuhlíðargöngum. Ekki heldur ráð fyrir flug- og umferðarmiðstöð í nágrenni núverandi umferðarmiðstöðvar. Þetta er því orðin handónýt hönnun, reglustrikuverk á flugvelli. Ekki er furða, þótt handónýtir borgarfulltrúar séu um það eitt sammála, að þessi handónýta hönnun Vatnsmýrar sé frábær.